144. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2014.

tilkynning um skrifleg svör.

[15:01]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Borist hafa tvö bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 384, um framlög til rannsókna í þágu ferðaþjónustu og iðnaðar, og á þskj. 443, um framlög til rannsókna í þágu sjávarútvegs og landbúnaðar, báðum frá Brynhildi Pétursdóttur.