144. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2014.

almannatryggingar.

35. mál
[18:21]
Horfa

Flm. (Sigríður Ingibjörg Ingadóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum.

Flutningsmenn að þessu máli eru auk mín hv. þingmenn Helgi Hjörvar, Oddný G. Harðardóttir og Össur Skarphéðinsson.

Með frumvarpinu er lagt til að örorkulífeyrisþegar sem fá greidda aldurstengda örorkuuppbót samkvæmt 21. gr. laga um almannatryggingar fái hana einnig greidda eftir að þeir hafa náð 67 ára aldri. Aldurstengd örorkuuppbót er bótaflokkur sem er hugsaður sem uppbót fyrir þá sem verða öryrkjar ungir að árum og hafa því safnað sér litlum réttindum í lífeyrissjóðum og fá þar af leiðandi lágar greiðslur þaðan. Fjárhæð aldurstengdrar örorkuuppbótar miðast við þann aldur sem einstaklingur er fyrst metinn 75% öryrki. Fjárhæðin lækkar síðan eftir því sem einstaklingur verður eldri þegar hann er metinn 75% öryrki. Sterk rök standa til þess að greiðslurnar haldi sér eftir 67 ára aldur enda engin hlutlæg ástæða fyrir því að tekjur öryrkja lækki við það eitt að verða 67 ára enda koma ekki til við þann aldur neinar auknar greiðslur á grundvelli annarra laga eða reglna.

Um 16 þúsund einstaklingar fá nú greidda aldurstengda örorkuuppbót í hverjum mánuði. Mánaðarleg heildargreiðsla aldurstengdrar örorkuuppbótar er um 245 millj. kr. á mánuði og er því meðalgreiðsla til hvers einstaklings ríflega 15.000 kr. á mánuði að meðaltali. Ljóst er að þessi útgjöld munu aukast við samþykkt frumvarpsins en nú eru tæplega 7 þúsund einstaklingar ellilífeyrisþegar sem áður voru örorkulífeyrisþegar og fengu greidda aldurstengda örorkuuppbót. Ef miðað er við fjölda skráðra ellilífeyrisþega í janúar, sem voru þar áður skráðir örorkulífeyrisþegar, og miðað er við hvenær þeir urðu öryrkjar, má gera ráð fyrir því að kostnaður við að halda áfram að greiða þeim einstaklingum aldurstengda örorkuuppbót sé um 20 millj. kr. á mánuði. Gróflega áætlað má gera ráð fyrir því að viðbótarkostnaður á næsta ári verði því um 240–250 millj. kr. verði frumvarpið samþykkt.

Í ákvæði til bráðabirgða er lagt til að þeir ellilífeyrisþegar sem fengu greidda aldurstengda örorkuuppbót til 67 ára aldurs en hafa eftir þann aldur ekki fengið greidda uppbótina geti einnig átt rétt á aldurstengdri örorkuuppbót að uppfylltum öðrum skilyrðum laga um almannatryggingar.

Í hinu stóra samhengi opinberra almannatrygginga er því ekki um háar fjárhæðir að ræða en fyrir hvern einstakling sem byggir framfærslu sína á ellilífeyrisgreiðslum almannatrygginga skipta greiðslurnar verulegu máli og er því um mikilvægt réttlætismál fyrir þann hóp að ræða.

Ég tel einboðið að við hér á Alþingi getum sameinast um þessa breytingu.

Hæstv. forseti. Ég legg til að þessu máli verði að lokinni 1. umr. vísað til velferðarnefndar.