144. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2014.

almannatryggingar.

35. mál
[18:36]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs í andsvari fyrst og fremst til að lýsa mjög eindregnum stuðningi við frumvarpið. Við höfum rætt það í okkar þingflokki og erum því hjartanlega sammála. Hv. þingmaður og fyrsti flutningsmaður, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, gerði prýðilega grein fyrir þeim rökum sem hvíla að baki þessari tillögu um breytingu á lögum og hef ég enga athugasemd fram að færa aðra en að lýsa stuðningi við frumvarpið.