144. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2014.

almannatryggingar.

35. mál
[18:36]
Horfa

Flm. (Sigríður Ingibjörg Ingadóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Ögmundur Jónasson beindi ekki til mín spurningu en ég þakka honum yfirlýstan stuðning. Ég vildi bara koma upp til þess að lýsa því yfir að sá stuðningur kemur mér ekki á óvart af hans hálfu. Ég fagna því að hafa fengið staðfestingu á því héðan úr ræðustól.