144. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2014.

ástandið í heilbrigðismálum.

[10:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Það er auðvelt að gera sig breiðan vegna ástandsins í heilbrigðismálum og vísa allri ábyrgð á þann sem hér stendur eða aðra ráðherra í ríkisstjórninni. Málið er ekki alveg svona einfalt. Á síðasta kjörtímabili var skorið niður um tæpa 30 milljarða í heilbrigðisþjónustunni og sérstaklega á Landspítalanum. Það var skorið niður af síðustu ríkisstjórn í heilbrigðismálum um um það bil 30 milljónir. Það hefur afleiðingar og þær eru enn að birtast okkur.

Við höfum aukið við framlög í heilbrigðismál. Við vildum mjög gjarnan gera meira og betur en við Íslendingar höfum þó aldrei áður sett meiri fjármuni í rekstur Landspítalans en einmitt á þessu ári. Það kemur síðan í ljós þegar líður undir lok þessa árs að Landspítalinn er nokkuð langt frá því að halda sig innan fjárheimilda sem er alvarlegt mál vegna þess að hér er fjárveitingavaldið og því miður virðist Landspítalinn ekki standast áætlanir á grundvelli þeirra fjárheimilda sem hann hefur á þessu ári. Á þeim grunni er nú rætt um að það muni þurfa að gera miklar ráðstafanir ef ekki komi viðbótarfé og að sjálfsögðu í því ljósi er verið, undir meðferð þingsins á fjárlagafrumvarpinu, að skoða hver hin raunverulega þörf sé og hvað sé hægt að gera meira til að koma til móts við þennan vanda.

En að halda því fram að þessi ríkisstjórn loki augunum fyrir vandanum eru hrein öfugmæli vegna þess að við höfum tekið á honum alveg sérstaklega. Það gerðum við fyrir ári með því að bæta við 4 milljörðum í heilbrigðiskerfið, setja af stað tækjakaupaáætlun og styrkja rekstrargrundvöll Landspítalans mjög verulega.