afgreiðsla rammaáætlunar úr atvinnuveganefnd.
Herra forseti. Það er þannig í valdatíð þessarar ríkisstjórnar að sífellt eru að koma inn mál eins og sprengjur. Flausturslega fljóta þau hingað inn í þingið án þess að nokkur stefna virðist liggja að baki. Ég tel einboðið að meiri hluti atvinnuveganefndar hætti við þessi áform sem þýða í raun stríðsástand um málaflokkinn vernd og nýtingu orkuauðlinda. Verið er að segja okkur stríð á hendur með þessum vinnubrögðum. Þessi mál eiga ekki heima á dagskrá þingsins nú um stundir. Þau eru hluti af vinnu sem á að koma fram í næsta áfanga rammaáætlunar og verður þá búið að raða þeim kostum í samræmi við það kerfi sem við höfum samþykkt á Alþingi.
Ég hvet því meiri hlutann í atvinnuveganefnd til að hætta við þessi áform sín og einbeita sér að öðrum þingstörfum, (Forseti hringir.) því að ekki veitir af tímanum til að klára þau verkefni sem þingmönnum ber lögum samkvæmt.