144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

afgreiðsla rammaáætlunar úr atvinnuveganefnd.

[11:18]
Horfa

Páll Jóhann Pálsson (F):

Virðulegi forseti. Menn fara hér mikinn. Ég tók ekki þátt í því þegar þessir virkjunarkostir voru færðir úr nýtingarflokki í biðflokk. Eftir því sem mér hefur skilist var það á grundvelli umsagna sem komu fyrir þá nefnd. Ég segi bara að þetta er nákvæmlega það sama í þessu máli núna, ef við lesum umsagnir, ansi margar umsagnir, er meira verið að benda á fleiri kosti og fleiri spurningar sem koma þar. Af hverju eru hinir kostirnir ekki teknir með?

Við gerum okkur grein fyrir því. Það er ekki eins og það sé verið að fara að virkja þetta. Þessir kostir fara í umhverfismat, þeir eiga allir eftir að fara í umhverfismat framkvæmda og þar eiga þau mál heima. Þar fyrir utan verður þetta breytingartillaga frá meiri hluta atvinnuveganefndar og hún mun svo koma (Forseti hringir.) til umræðu hér og mun þingið þar með taka ákvörðun um þetta. Hver annar er betri í því en þið sjálf? (Gripið fram í.)