upplýsingar um skattaskjól.
Virðulegi forseti. Mig langar að ræða við hæstv. fjármálaráðherra um þær hugmyndir sem hafa verið uppi um að kaupa gögn með upplýsingum um skattaskjól. Þetta er gríðarlega stórt mál því að tekjuöflun ríkisins er auðvitað stórmál og hlýtur að vera áhugamál okkar allra sem hér erum. Við vitum það líka að talsvert miklar tekjur eru geymdar annars staðar en á Íslandi, þ.e. í skattaskjólum. Þetta er auðvitað ekki séríslenskt fyrirbæri, þetta sjáum við um allan heim og við þessu hafa ríkisstjórnir verið að bregðast, til að mynda með því að kaupa slíkar upplýsingar. Ríkisstjórnir Þýskalands og Bretlands hafa gert það og nú hefur það verið til umræðu hér á landi.
Hæstv. ráðherra hefur ítrekað lýst því yfir að þetta komi vel til greina. Ég tel að það sé mjög mikilvægt hvernig við höldum á þessu máli. Ef við horfum bara til þess hvernig auðurinn í heiminum hefur verið að skiptast á undanförnum árum og áratugum þá sjáum við þróun þar sem efsta 0,1% sem mestar tekjur fær þiggur þær fyrst og fremst af fjármagni og geymir það víða í skattaskjólum. Það hefur mikið verið gert í þessu á undanförnum árum, til að mynda hafa mjög margir upplýsingaskiptasamningar verið gerðir. Það hefur horft til betri vegar, en það eru ýmsar leiðir til að fara fram hjá kerfinu og ein leið til að bregðast við því fyrir ríkisstjórnir hefur verið að kaupa slíkar upplýsingar. Það er forgangsmál að almenningur í landinu geti treyst skattkerfinu, að eitt sé látið yfir alla ganga. Þess vegna skiptir mjög miklu máli hvernig við förum með þessar eignir.
Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra, af því að hann hefur sagt eins og ég sagði hér áðan að þetta komi vel til greina, að þetta sé í skoðun, en tíminn vinnur varla með okkur í þessu máli: Eigum við von á einhverjum lagabreytingum á þessu þingi sem gefa þá skattrannsóknarstjóra heimild til að kaupa slík gögn? Það voru einhverjar efasemdir uppi um að skattrannsóknarstjóri hefði slíka heimild.
Mig langar líka að spyrja hæstv. ráðherra hvar honum finnst að slíkt ákvörðunarvald eigi að liggja, hvort (Forseti hringir.) það eigi að liggja hjá skattrannsóknarstjóra eða á borði ráðherra, og hvernig hann sjái nákvæmlega (Forseti hringir.) næstu skref fyrir sér í þessu máli.