144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

upplýsingar um skattaskjól.

[11:29]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Ég hef átt fund með skattrannsóknarstjóra vegna þessa máls og ráðuneytinu hefur jafnframt borist erindi fyrr á árinu frá skattrannsóknarstjóra í tilefni af upplýsingum sem embættinu standa til boða. Á fundi okkar skattrannsóknarstjóra var farið yfir málið frá öllum hliðum og þar kom fram að í sjálfu sér væri ekkert sem kæmi í veg fyrir það að skattrannsóknarstjóri gæti sótt þessar upplýsingar. Hins vegar skipti það embættið miklu máli að það vissi af stuðningi vegna þeirra skuldbindinga sem kynnu að fylgja í kjölfarið.

Nú er það þannig með þessi mál að þau geta verið með ýmsum hætti vaxin. Í sumum tilvikum er það svo að þeir sem bjóða upplýsingar af þessum toga óska einungis eftir greiðslu ef árangur verður af skattheimtu í kjölfar þess að upplýsingarnar komu fram. Í þeim tilvikum ætti að vera tiltölulega áhættulítið og reyndar alveg áhættulaust að gangast undir slíka skilmála enda væri einungis um lítið brot, kannski einhvers staðar í kringum 1% af skatttekjunum sem kæmu þá fyrir sem greiðsla.

Þau skilaboð voru skýr af minni hálfu á umræddum fundi að við sæjum því ekkert til fyrirstöðu að embættið gripi til þessara ráðstafana. Það verður hins vegar alltaf, fyrst spurt er sérstaklega um það, að vera á endanum mat embættisins hvort gögnin eru líkleg til þess að ná árangri í þeim störfum sem embættið er að sinna, hvort eitthvert virði sé í gögnunum yfir höfuð og að það auki líkurnar á árangri í skatteftirliti.

Ég hef komið á fót starfshópi til að meta það hvort ástæða er fyrir okkur Íslendinga til að feta sömu slóð og sumar Norðurlandaþjóðir hafa gert hvað það snertir að koma sérstöku Amnesty-ákvæði inn í lög, sem væri tímabundinn hvati fyrir þá sem ekki hafa talið rétt fram í fortíð, og við höfum ekki komist (Forseti hringir.) á snoðir um að hafi ekki talið rétt fram, hvort við gætum búið til hvata fyrir þá til að gefa upp tekjur sínar og afla ríkissjóði tekna. Það hefur reynst vel annars staðar og við viljum skoða hvort það kynni að gera það líka hér.