144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

fjáraukalög 2014.

367. mál
[13:23]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við göngum nú til atkvæða um þetta frumvarp. Af hálfu okkar í stjórnarandstöðunni er auðvitað eitt atriði sem sker í augun. Það er að ríkisstjórnin gerir ekki breytingartillögur sem hún gæti gert til að bregðast við uppsöfnuðum vanda Landspítalans sem eðlilegt væri að bregðast við innan ramma fjáraukalaga. Ég vil sérstaklega nefna óbættar hækkanir vegna launa sem spítalinn þarf að óbreyttu að bera.

Við höfum nú fengið að sjá fjárlagatillögur ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár þar sem fjárþörf Landspítalans er ekki mætt með fullnægjandi hætti. Við munum þess vegna áskilja okkur rétt til að koma fram með tillögur vegna ófullnægjandi fjárveitingar til Landspítalans í fjáraukalögum milli 2. og 3. umr.