144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

fjáraukalög 2014.

367. mál
[13:31]
Horfa

Valgerður Gunnarsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég fagna því sérstaklega að við erum hér í fjáraukalögum að samþykkja að setja fjármuni í að koma til móts við þarfir allra þeirra fjölmörgu sem urðu fyrir því að húsnæðislán þeirra hækkuðu stórfellt á síðasta kjörtímabili og þar með á sér stað sú skuldaleiðrétting sem ríkisstjórnarflokkarnir boðuðu.

Ég fagna því líka sérstaklega að í þessum fjáraukalögum er verið að bæta verulega í menntakerfið og það er verið að bæta inn til Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, til landbúnaðarháskólanna og framhaldsskólanna og ég vil sérstaklega vekja athygli á því að verið er að setja inn fjármuni til þess að gólf geti haldist hjá minnstu framhaldsskólunum áfram.