fjáraukalög 2014.
Jæja, það er alla vega komin einhver skjaldborg um einhverja.
Ég hef mjög miklar áhyggjur af svona forgangsröðun. Á hverjum einasta degi fæ ég bréf frá fólki, hringingar frá fólki sem ekki getur dregið fram lífið á því sem það hefur á milli handanna. Það á ekki fyrir mat. Það á ekki fyrir lyfjum. Það getur ekki farið á spítala. Þetta fólk borgar skatta og hefur borgað skatta til samfélagsins af veikum mætti.
Forgangsröðunin hér er þessi: Fyrirtækjum, sem ekki þurfa að greiða réttmætt veiðigjald, sem skila miklum hagnaði og arði, er hlíft á meðan hér á að leggja á matarskatt. Hvers konar skjaldborg er það eiginlega? Er það skjaldborgin um eitt prósentustig? Svo sannarlega, því að hér er engin skjaldborg um almenning.