144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

fjáraukalög 2014.

367. mál
[13:46]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill bara árétta, svo það sé haft í huga, að þegar hv. þingmenn gera grein fyrir atkvæði sínu er það þannig að lokað er fyrir mælendaskrá um leið og sá fyrsti tekur til máls til að gera grein fyrir atkvæði sínu. Öðru máli gegnir þegar rætt er um atkvæðagreiðslu.