fjáraukalög 2014.
Virðulegi forseti. Ég vil eins og hv. þingmenn sem hafa talað á undan mér gagnrýna þau vinnubrögð sem höfð voru í hv. fjárlaganefnd þegar þessar tillögur voru bornar fram. Í fyrsta lagi voru þær kynntar okkur munnlega og í öðru lagi höfðum við fulltrúar í hv. fjárlaganefnd ekki séð nein gögn sem studdu þær.
Þarna er ekki um háar upphæðir að ræða en það er til marks um slæleg vinnubrögð hvernig þetta bar að. Báðir þessir skólar glíma við rekstrarvanda og ég mun verða á græna takkanum við afgreiðslu þessarar tillögu, því að þeim veitir ekki af fjármunum. En að draga þessi atriði út er í fyrsta lagi ekki ófyrirséð og engin gögn liggja undir þegar meiri hlutinn tekur þessa ákvörðun.