144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

fjáraukalög 2014.

367. mál
[14:06]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Það ber að fagna þessu viðbótarframlagi til Samskiptamiðstöðvar en ég ætla að biðjast undan því að búnar séu til söguskýringar um að hér hafi verið einhver skipuleg ákvörðun (Gripið fram í: Sannleikurinn …) af hálfu hv. fjárlaganefndar. Við vorum búin að berjast fyrir þessari breytingu en fengum inn klárar yfirlýsingar frá hæstv. menntamálaráðherra um að hann legðist gegn því að þessu yrði breytt og það var sama með afsökun sem hv. formaður fjárlaganefndar kemur með, að farið sé að borga táknmálstúlkum svo mikið að ekki sé til nægur peningur. Þeir eru með 8–9 þúsund eða í kringum 9 þúsund á klukkutímann í útseldri vinnu og það væri frábært ef hv. formaður fjárlaganefndar tæki sig til og lækkaði starfsstéttina sem hún tilheyrir, lögfræðinga, niður í þá upphæð svo að við gætum talað um samkeppni. Hér er verið að tala af lítilsvirðingu um sjálfsögð mannréttindi og við eigum að gera mun betur í þessu, eins og ég og fleiri höfum barist fyrir. Ég skora því á okkur að bæta vel í en vera ekki að hreykja okkur á röngum forsendum fyrir þetta litla framlag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)