144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

fjáraukalög 2014.

367. mál
[14:34]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Mér finnst ekki hægt að samþykkja þessa fjárveitingu þótt ég taki vissulega undir það sem hv. formaður fjárlaganefndar sagði áðan, þingmönnum er stillt upp við vegg, það er búið að eyða þessum fjármunum. Hins vegar er framkvæmdin á þessu öllu eiginlega okkur til skammar, það verður að segjast eins og er. Það er mjög erfitt þegar Alþingi hefur ekki stjórn á eigin verkefnum að gera þá kröfu til stofnana að þær haldi sig innan ramma fjárlaga, því þær eru líka oft settar upp við vegg. Þannig að ég vona að við lærum af þessu, þetta muni ekki gerast aftur, en ég get ekki greitt atkvæði með þessu.