144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

framhaldsskólar.

214. mál
[18:44]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Unnur Brá Konráðsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008 (rafræn námsgögn o.fl.). Mig langar að byrja á því í anda þeirrar góðu umræðu sem var hér á undan að koma á framfæri kærum og hjartnæmum þökkum til nefndarmanna fyrir mjög gott samstarf við vinnslu þessa máls.

Forsaga málsins er sú að frumvarpið er hluti frumvarps sem var lagt fram á síðasta þingi. Sá háttur við afgreiðslu þess máls sl. vor var að hluti umrædds frumvarps fór í gegnum þingið en við lögðum fram breytingartillögu um að 1.–4. gr. þess yrðu felldar brott vegna þess að við fengum stuttan tíma í nefndinni til að vinna málið. Nú eru þær greinar lagðar fram í þessu frumvarpi, auk þess sem 3. gr. var bætt við, en hún á rætur að rekja til kjarasamninga sem voru gerðir sl. vor.

Þetta frumvarp felur í sér breytingar á ákvæðum gildandi laga að því er varðar rétt náms- og starfsráðgjafa til að sækja um launað námsorlof. Um er að ræða mál sem við í meiri hlutanum fögnum. Það leiðir til þess að jafnræðis verði gætt meðal starfsstétta. Það krefst auðvitað ákveðins fjármagns og mér skilst að komið verði til móts við þær kröfur í fjárlagavinnunni sem nú fer fram í þinginu.

Í öðru lagi er verið að leggja til breytingar á 45. gr. laga um framhaldsskóla, um gjaldtökuheimildir opinberra framhaldsskóla. Verði frumvarpið að lögum mun ráðherra heimila skólum að innheimta gjald fyrir rafrænt efni sem er ákveðið að nýta í kennslu. Gert ráð fyrir að þessi heimild verði í tilraunaskyni, í takmarkaðan tíma og bundin við tilteknar námsgreinar. Hámarksupphæð, greiðslufyrirkomulag o.fl. verður nánar útfært síðar í reglugerð sem ráðherra gefur út.

Þetta var rætt mjög mikið í nefndinni. Við í meiri hlutanum teljum að þessi breyting feli í sér að fjölbreytni í útgáfu rafræns námsefnis muni aukast til muna og verð á útgefnu námsefni muni lækka með hagnýtingu á nýrri tækni. Það verður að sjálfsögðu öllum til hagsbóta. Við teljum að við þetta opnist greiðari aðgangur fyrir nemendur að fjölbreyttu og nútímalegu námsefni á lægra verði öllum til hagsbóta. Það kom á daginn að skortur hefur verið á ýmsu námsefni fyrir nám sem ekki er kennt víða í skólakerfinu. Ég ítreka að um er að ræða tilraunaverkefni í takmarkaðan tíma.

Jafnframt er rétt að geta þess að fram kom í nefndinni að unnið er að því að koma á fót undirstofnun mennta- og menningarmálaráðuneytis sem mun taka við verkefnum Námsgagnastofnunar. Hlutverk þeirrar stofnunar mun ná til allra skólastiga. Það er skilningur okkar í meiri hlutanum að ákvæðið í 4. gr. frumvarpsins feli í sér heimild til handa framhaldsskólunum til að dreifa og annast innheimtu fyrir rafrænt námsefni sem aðrir gefi út og það leiði þá til lækkunar á bókakostnaði framhaldsskólanema.

Lagðar eru til tvær breytingartillögur sem eru báðar lagatæknilegs eðlis og koma fram í lok nefndarálits meiri hluta.

Undir nefndarálitið skrifar sú sem hér stendur og hv. þingmenn Líneik Anna Sævarsdóttir, Elsa Lára Arnardóttir, Jóhanna María Sigmundsdóttir og Vilhjálmur Árnason.