tekjustofnar sveitarfélaga.
Forseti. Það kemur stundum fyrir hér í þinginu að mér finnst ég ekki alveg jafn skjót og margir aðrir í að tileinka mér hugsunarháttinn um efnið sem umræðan snýst um og þá þarf ég náttúrlega að finna einhverja afsökun fyrir því. Mín afsökun er sú að ég hef aldrei tekið þátt í sveitarstjórnarmálum en það hafa náttúrlega margir hér inni gert. Þótt ég hafi kynnt mér allt um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og þykist vita nokkurn veginn um hvað hann snýst er hann mér ekki jafn ofarlega í huga og kunnátta mín af honum ekki jafn mikil og margra samþingmanna minna í þingsölum Alþingis.
Jöfnunarsjóður er svolítið lýsandi fyrir það hvernig oft er gerður greinarmunur í sölum Alþingis og reyndar í þjóðfélaginu öllu á okkur eftir því hvar við búum á landinu og fólk vill stundum ýkja þann mun. Ég hlýt að fagna þeirri tillögu sem hér er gerð um fjölgun í ráðgjafarnefnd um framlög úr jöfnunarsjóði þar sem er verið að bæta við tveimur mönnum til þess að í ráðgjafarhópnum séu einhverjir sem klárlega gæta hagsmuna eða gæta að málefnum Reykjavíkur og sveitarfélaganna í kring. Það kemur fram að þetta er sérstaklega gert vegna þess að málefni fatlaðs fólks voru flutt frá ríkisvaldinu yfir til sveitarfélaganna sem hafði gífurlegar breytingar í för með sér fyrir sveitarfélögin og ljóst að þetta hafði einnig í för með sér mikla fjárhagslega byrði — eða skyldu, ég ætla ekki að kalla það byrði heldur fjárhagslega skyldu sveitarfélaganna.
Því var velt upp af hæstv. ráðherra og ég vil taka undir það sjónarmið með henni að kannski hefðum við átt að vera búin að breyta þessu og bæta þessum fulltrúum fyrr við. Þá segir hún réttilega að Samband íslenskra sveitarfélaga hefði hugsanlega mátt hugsa fyrir því að tilnefna öðruvísi í hópinn, ég vil taka undir það sjónarmið með henni. En hér er leyst úr því í frumvarpinu og því ber að fagna. Þetta er fyrsta atriðið í frumvarpinu sem hér er lagt fram.
Annað atriðið er svolítið flókið að lesa sig fram úr en tengist því að fasteignamatinu hefur verið breytt og því hvernig fasteignaskattar eru lagðir á. Ef ég skil þetta rétt er hið nýja fyrirkomulag að vilja sveitarfélaganna og þau telja þá aðferð sem nú er notuð, að endurmeta fasteignaverð með vissu millibili, betri en þá gömlu. Hins vegar hefur komið í ljós að það hefur orðið gífurleg hækkun á fasteignamati. Innanríkisráðuneytið leggur til að þau áhrif verði milduð. Af hverju? Jú, tillaga hafði komið upp um það að fresta þessu einfaldlega í einhvern tíma þannig að fyrirtæki væru betur undir það búin að standa undir þeim auknu greiðslum sem verða í mörgum tilfellum, að því er skilja má. En þá hafi fólk talið, af því að sumir eigi að fá lækkun, að ekki væri sanngjarnt að fresta breytingunni fyrir þá sem ættu að njóta lækkunar. Ég verð að segja að mér finnst skynsamlegri ráðstöfun að milda áhrif hækkananna en að fresta þeim beinlínis. Fyrir það fyrsta þá getur lækkunin, í þeim tilfellum sem hún verður, þá komið til framkvæmda strax. En eftir því sem skilja má af frumvarpinu og orðum hæstv. ráðherra áðan mun lækkun samt sem áður ekki koma fram að fullu fyrr en við álagningu 2017. Nú er árið 2014 þannig að það er ekki á næsta ári eða þarnæsta heldur 2017. Ég get ekki séð annað en að þetta sé skynsamleg ráðstöfun. Ég tek auðvitað fram að það er við fyrstu sýn. Nefndin á eftir að fara í gegnum þetta og kannski verður bent á eitthvað sem leiðir til þess að skoðun mín breytist á því en við fyrstu sýn sýnist mér þetta í góðum gír.
Síðan er það b-liður 2. gr. og hann kemur til vegna séreignarsparnaðarins. Mér finnst það nú lýsandi, fólk vissi ekki alveg hvernig þetta yrði, eins og hefur komið fram fyrr, og jafnvel þótt það hafi dregist í þennan tíma sem það gerði frá kosningum að koma fram með frumvörpin um hina miklu millifærslu skulda var ekki ljóst allan tímann hvernig það mundi nákvæmlega gera sig. Eitt af því sem ég man eftir að spurt var um þegar þetta var til umræðu og hart talað um var: Hvaða áhrif hefur ákvæði um séreignarsparnaðinn á sveitarfélögin? Ég vil taka fram að mér finnst ákvæðið um að fólk geti notað séreignarsparnað til að greiða niður skuldir sínar eini ljósi punkturinn í þessum skuldamillifærslum öllum. Það þýðir nákvæmlega að fólk getur notað séreignarsparnaðinn sinn ef það vill, ef það vill ekki nota hann þá notar það hann ekki. Hins vegar hlýtur að vera gífurlegur hvati fyrir fólk að nota sparnaðinn að hann verður skattfrjáls. Og það er einmitt vegna þess að hann verður skattfrjáls sem tekjur sveitarfélaganna munu lækka vegna þess að þau verða af útsvarstekjum.
Fólk ræddi þetta mikið og spurði um hvert tekjutap sveitarfélaganna yrði vegna lækkaðra útsvarstekna. Hér er sú tala sett fram og ég minnist þess ekki að hafa séð hana eða heyrt hana svona nákvæma fyrr. Nú kemur fram í þessu frumvarpi að tekjutapið verður 3,9 milljarðar. Það er talsverð upphæð. Við megum í þeirri andrá hugsa til þess að eftir því sem ég best veit var ekki haft neitt samráð við sveitarfélögin þegar þetta var allt samið og lagt til og ákveðið hér á þingi. Það var ekki haft neitt samráð við sveitarfélögin út af þessu tekjutapi. En nú er reynt að taka á því. Áætlað er að tekjur jöfnunarsjóðs muni aukast um 2,4 milljarða frá miðju ári 2014 til og með 2017 vegna álagningar sérstaks skatt á fjármálafyrirtæki, svokallaðs bankaskatts. Ef ég skil það rétt er nettótap sveitarfélaganna á þessu 1,5 milljarðar. Það er náttúrlega heilmikið. Svo segir, með leyfi forseta, um b-lið í greinargerð með frumvarpinu:
„Yrði þessari tekjuaukningu jöfnunarsjóðs dreift til sveitarfélaganna sem jöfnunarframlagi á grundvelli 12. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga mundi hún hins vegar ekki skiptast í réttu hlutfalli við útsvarstekjutap einstakra sveitarfélaga. Þannig mundi Reykjavíkurborg og fleiri fjölmenn sveitarfélög fá nánast ekkert í sinn hlut en sem dæmi má nefna að hlutdeild borgarinnar í útsvarstekjum á landsvísu er um það bil 38%.
Til að mæta þessu er hér gert ráð fyrir því að framangreindu útsvarstekjutapi sveitarfélaganna á árunum 2014–2017 verði mætt með sérstöku framlagi jöfnunarsjóðs þar sem útdeilt verði tekjuauka sjóðsins vegna álagningar sérstaks gjalds á bankastarfsemi frá miðju ári 2014 til ársins 2017. Þessu sérstaka framlagi verður deilt út á grundvelli hlutdeildar sveitarfélaganna í heildarútsvarsstofni ársins á undan.“
Mín skoðun er sú að ekki hefði átt að fara í skuldaniðurfærsluna alla heldur hefði átt að nota bankaskattinn til að greiða niður skuldir ríkissjóðs, og ef menn vildu ekki gera það að bæta þá í innviðina. Við hefðum ekki átt að færa þessar skuldir á milli fólks eða frá einhverjum og síðan verða aðrir út undan. En að því öllu sögðu er staðreynd málsins sú að út í þetta hefur verið lagt, þetta var samþykkt á Alþingi. Það er ljóst að út af séreignarsparnaðinum verður tekjutap hjá sveitarfélögunum og við því er reynt að bregðast hér og það ber að fagna því.