örnefni.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra framsöguna. Ég er með tvær spurningar, kannski fyrst og fremst til ráðherrans. Annars vegar að því er varðar ábyrgð sveitarstjórnanna sem snýst að sumu leyti um flutning á ábyrgð. Þá vil ég spyrja ráðherrann hvort lagt hafi verið mat á það við gerð frumvarpsins, í samstarfi ráðuneytis og Sambands sveitarfélaga, hversu vel einstök sveitarfélög væru í stakk búin til að uppfylla þessar skyldur og þessi nýju verkefni.
Þetta kemur náttúrlega gríðarlega oft upp varðandi einstök verkefni sem sveitarfélögin takast á hendur, þessi gríðarlegi munur á því bolmagni sem sveitarfélögin hafa yfir að búa. Ég vil spyrja hvort örnefnum landsins sé öllum jafn vel borgið með því fyrirkomulagi að ábyrgðin á nafngiftunum og skráning o.s.frv. sé í ríkari mæli hjá sveitarfélögunum en var.
Hin spurningin sem ég vil gjarnan spyrja ráðherrann um er skipulagt samstarf Landmælinga og Stofnunar Árna Magnússonar sem hefur verið afar gott og er, má eiginlega segja, hornsteinn þess að þetta gangi allt saman vel fyrir sig. Þarna er líka um að ræða hina ókleifu múra, á stundum, milli ráðuneyta og stofnana einstakra ráðuneyta. Ég spyr hvort það samstarf hafi verið formgert með skýrari hætti en áður hefur verið og hvernig ráðherrann sér fyrir sér framkvæmdina á nákvæmlega þessum þætti inn í framtíðina.