144. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2014.

örnefni.

403. mál
[13:51]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í framhaldi af þessu má líka segja að það væri einkar bagalegt ef slíkir vegvísar yrðu til þess að auka á rugling og villu. Þeim er ætlað að skýra mál og auðvelda för. Það þarf þá að vera samræmi á milli þeirra og korta, rafrænna korta, sem vegfarendur hafa til hliðsjónar þegar verið er að ferðast.

Þetta er ágæt ábending frá hv. þingmanni. Ég bendi reyndar á að þegar kemur að skipan örnefnanefndar þá er það ráðherra sem fer með skipulagsmál og ráðherra sveitarstjórnarmála sem skipar í nefndina. Það er aftur á móti engin trygging fyrir því að vegamálin verði alltaf undir hjá þeim ráðherrum, en það stendur alla vega þannig á.

Ég held að það sé vel til fundið að í meðförum nefndarinnar verði þetta rætt vegna þess að það er alveg hárrétt, sem hv. þingmaður nefnir, að þarna þarf að vera gott samræmi á milli og tryggt að farið sé rétt með. Þarna kemur mjög skýrt fram að það eru mjög margir notendur að þeim upplýsingum sem um ræðir.