náttúrupassi og almannaréttur.
Virðulegur forseti. Enn á ný hvet ég fólk til að hafa biðlund þar til þessar tillögur koma fram vegna þess að það er óskaplega erfitt að tjá sig um tillögur eða svara málflutningi sem er svo fjarstæðukenndur. Í fyrsta lagi er ekki verið að leggja til að lögreglan hafi eftirlit með ferðamönnum á Íslandi. Í öðru lagi er ekki verið að afnema almannarétt. Það sem við erum að gera hér — hverra hagsmuna er verið að gæta? Ég hef haft það að leiðarljósi í öllu þessu máli að gæta hagsmuna íslensku náttúrunnar. Við erum að vernda íslenska náttúru, við erum að vernda þá vöru sem ferðamenn koma hingað til að skoða og sem við Íslendingar viljum njóta um aldur og ævi. Við erum að tryggja trausta og örugga fjármögnun sem mun koma að litlu leyti frá Íslendingum, 500 kr. á ári fyrir hvern Íslending 18 ára og eldri, 85–90% af tekjunum koma frá erlenda ferðamanninum. Ferðamanninum, hvort sem hann er Íslendingur eða útlendingur, er ekki gert skylt að vera með passann á sér um allt land heldur er það á fyrir fram skilgreindum stöðum þar sem uppbygging er fyrir hendi. Almannaréttur getur aldrei gengið framar náttúruvernd og ég held að hv. þingmaður, fyrrverandi hæstv. umhverfisráðherra, hljóti að vita að það gengur ekki fram. Auðvitað er hægt að takmarka almannarétt með náttúruvernd að leiðarljósi. Ég hlakka mjög mikið til þegar ég get lagt þetta frumvarp fram og við getum farið að ræða það út frá þeim staðreyndum, út frá þeim tillögum sem þar liggja. Þær hafa verið rúmt ár í smíðum, ekki tvö ár, vegna þess að við notuðum síðasta sumar, sumarið 2013, til að fara yfir allar þær leiðir sem mögulegar eru. Þetta varð sú niðurstaða sem við komumst að (Forseti hringir.) eftir vandlega íhugun og mikið samráð. Það er rétt að Samtök ferðaþjónustunnar leggja nú til aðra leið en það er ekki það sem hefur verið alla þá vegferð sem við höfum farið saman.