virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Ég tók eftir því að hv. þingmaður lagði lykkju á leið sína til að forðast að svara spurningu minni um það hvort framsóknarmenn yrðu þá tilbúnir að samþykkja 14% virðisaukaskatt í fjárlagafrumvarpi næsta hausts sem er boðað í þessu og enginn fyrirvari gerður um af hálfu Framsóknarflokksins.
Þetta snýst ekkert um það hvort neytendur eru upplýstir eða hvort seljendur vöru eru gott fólk eða ekki. Þetta snýst einfaldlega um það að á frjálsum markaði takast á ólíkir kraftar og það er engin leið að regla þá. Reynslan segir okkur að lækkanir á verði leiti síður út í verðlag en hækkanir. Það er bara efnisleg greining sem liggur fyrir um það og það þýðir ekkert að þræta um það.
Menn sem þræta um það eru bara að loka augunum fyrir staðreyndum og byggja sér einhvern gerviheim. Það er gott að lækka efra þrepið. Ef menn ætla að hækka neðra þrepið þarf alvörumótvægisaðgerðir. Það hef ég sagt frá upphafi, það hefur þessi ríkisstjórn klikkað á að gera.