virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni gott svar. Þetta er ekki einfalt. Virðisaukaskattskerfið er býsna flókið kerfi og þar með óskilvirkt til að ná fram tekjujöfnun og félagslegum markmiðum — ég held að við séum öll sammála um það. Það er vænlegra að horfa til beinna bótaframlaga og tekjuskattskerfisins. Ég held að hagfræðin sem fræðigrein sýni fram á það en pólitíkin hefur einhvers konar hugmyndafræðilegar skoðanir á því eðli málsins samkvæmt.
Hv. þingmaður kom hér inn á bókaútgáfu og tónlist og menningu. Ég held að ég geti alveg fullyrt, og minntist á það í andsvari hér áður, að ég hef áhyggjur af bókaútgáfunni, að við viðhöldum þessari fjölbreyttu flóru í bókaútgáfu fræðibóka og barnabókmennta og ýmiss konar bókaútgáfu.
Bókaútgáfan á undir högg að sækja og fulltrúar hennar komu fyrir nefndina. Hv. þingmaður nefndi í því samhengi tónlistina og fleira annað í þessu menningarlega samhengi. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér, af því að hann talar um svona róttækt, þverpólitískt samráð, að við náum hreinlega að bjarga þessum þáttum, og hvort þessi hækkun úr 7% í 11% muni gera (Forseti hringir.) út af við bókaútgáfu?