144. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[18:07]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Þegar menn hafa búið við tollvernd og ríkisstyrki þá tekurðu tollverndina ekkert af sisvona án þess að á móti komi ígildi þess stuðnings að einhverju leyti. Til lengri tíma viljum við sjá hvort hægt sé að gera þessa atvinnugrein arðbærari og styðja við hana þannig að hægt sé að lækka stuðninginn þegar fram í sækir. Það er bara pólitískt mál sem verður að ræða.

Það er alveg klárt að ef við viljum lækka matvælaverð og gera það á skilvirkan hátt án þess að skaða búvöruframleiðslu þá tökum við þessa matartolla af, en setjum stuðninginn, eins og var gert í grænmetinu og var nefnt, inn með öðrum hætti.

Varðandi skilvirkni í kerfinu og skattkerfinu í heild sem er eitt af leiðarljósum ríkisstjórnarinnar í þessum skattbreytingum öllum — þegar kemur að virðisaukanum nefndi hæstv. fjármálaráðherra tvennt. Hann sagði: Það er skilvirkara að hafa sem fæstar undanþágur og það er skilvirkara að hafa eitt skattþrep eða alla vega minnka bilið á milli skattþrepanna. Það er það sem verið er að gera núna. Þess vegna er matvælaverðið að hækka nema mótvægisaðgerðirnar verði þeim mun sterkari, meðal annars að taka matartollana af.

Þá spyr maður sjálfan sig: Hvers vegna er ekki klippt á þá undanþágu sem laxveiði hefur? Þetta eru að miklu leyti til túristar og sá bransi fékk hvalreka og aukna eftirspurn í kjölfar lækkandi verðs á krónunni sem allir aðrir þurftu að bera og þetta er (Forseti hringir.) hálaunasport. Hvers vegna að hafa þá undanþágu? Það má ekki hafa mat sem undanþágu út af því það er svo óskilvirkt, en það má (Forseti hringir.) hafa laxveiði sem undanþágu.