virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka spurninguna. Íslenska er að mínu mati eitt af mikilvægu málefnunum sem við ræðum hér. Við samþykktum samhljóma á Alþingi þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun um notkun íslensku í stafrænni upplýsingatækni. Það var vegna þess að fyrir liggur að íslenska tungan muni ekki lifa af til lengri tíma nema við aðhöfumst eitthvað.
Það er rétt sem hv. þm. Katrín Jakobsdóttir bendir á að þegar við tölum um þetta mál eitt og sér þá eru allir til í að hjálpa og allir til í að bjarga íslenskunni. Það eru allir til í að hjálpa fólki að læra vel að lesa og skilja tungumálið en þegar kemur að því að færa þær fórnir sem það kostar þá virðist allt í einu þurfa að forgangsraða öðruvísi.
Til að svara spurningu hv. þingmanns um hvaða áhrif ég teldi hækkun virðisaukaskatts á bækur geta haft þá held ég að hún geti haft mjög vondar afleiðingar. Ég fullyrði reyndar blákalt að svo verði vegna þess að bókaútgáfa á nú þegar undir högg að sækja. Þetta er eitt af því sem nútímatæknin hjálpar ekki sérstaklega mikið við akkúrat á þessu augnabliki, a.m.k. ekki fyrr en það verða komin einhver ný viðskiptamódel sem gera bókaútgefendum kleift að lifa almennilega af sinni vinnu. Það er önnur ógnum sem steðja að íslensku tungunni. Það þarf að borga sig að skrifa. Það borgar sig ekki að skrifa akkúrat núna vegna óhjákvæmilegra tækniframfara. Það er ekki augljóst hvernig á að leysa það. Fjölföldunarvarnir hafa ekki virkað og geta ekki virkað í eðli sínu; þær skemma meira fyrir lögmætum notendum en ólögmætum. Þess vegna verðum við að bregðast við.
Þess vegna er ég alltaf að segja á hinu háa Alþingi: Við þurfum að fórna einhverju ef við ætlum að halda í íslenska tungu. Ég skil ekki hvernig það á að geta haft önnur áhrif að hækka virðisaukaskatt á bækur en að draga úr bókaútgáfu. Ég skil ekki hvernig menn geta horft upp á það (Forseti hringir.) án þess að óttast að við glötum (Forseti hringir.) íslenskri tungu þegar til lengri tíma er litið.