virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Þarna fékk ég næstum því stöðuhækkun. Ég veit hreinlega ekki hvernig yfirvöld ættu að standa að því að hvetja atvinnulífið til að lækka verð nema gera það á einhvern mekanískan hátt. Ég skil ekki hvernig yfirvöld hyggjast gefa skilaboð í orðum í þeim efnum. En mér finnst niðurlagið, í nefndarálitinu sem hv. þingmaður nefnir, benda til þess að meiri hlutinn átti sig alveg á því hvaða áhrif þetta hefur, eða öllu heldur hvaða áhrif þetta hafi ekki, að þetta muni ekki skila sér strax út í verðlagið.
Eins og farið var út í áðan má hreinlega gera ráð fyrir því að útreikningarnir á því hvað þetta spari almenningi séu rangir, við getum gefið okkur það fyrir fram. Þessar skattalækkanir munu skila sér seint og illa eðli málsins samkvæmt, þótt þær geti reyndar til lengri tíma, ég verð að hafa þann fyrirvara á, varnað verðhækkunum, þegar verðbólgan „kikkar inn“, eða hvað svo sem maður segir á okkar ástkæra, ylhýra máli.
Til að vera alveg skýr þá er ég á móti matarskatti yfir höfuð og hefur verið gert grín að mér hér fyrir það. Ég lít svo á að það séu margar nauðsynjavörur í nútímalífi en matur er sér á báti, vegna þess að maður getur lifað á einhverjum tímapunkti einhvers staðar undir einhverjum kringumstæðum án rafmagns og maður getur lifað (PHB: Ekki án húsnæðis.) — jú, hv. þm. Pétur H. Blöndal, maður getur víst lifað án húsnæðis einhvers staðar á jörðinni (PHB: Á jörðinni?) — já, einhvers staðar á jörðinni og til lengri tíma undir ákveðnum kringumstæðum. Það er hins vegar fullkomlega ómögulegt að lifa án matar. Fyrir mér er það prinsippatriði. Ég hef ekki áhyggjur í sjálfu sér af því að Íslendingar fari að svelta út af þessu, það er ekki áhyggjuefnið. En fyrir mér er það prinsippmál að ekki eigi að skattleggja eitthvað sem allir hafa alltaf þurft alls staðar til að lifa.