virðisaukaskattur o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Hún kom inn á marga þætti sem eru umhugsunarverðir. Þá vil ég fyrst nefna bága stöðu láglaunafólks í landinu og áhrif þessa frumvarps á stöðu þeirra.
Það hefur komið fram hjá umsagnaraðilum að láglaunafólk eyðir rúmlega 20% af ráðstöfunartekjum sínum í matarinnkaup á móti 10% þeirra sem eru hærra launaðir, hálaunafólk. Mig langar að heyra viðhorf hennar varðandi þetta innlegg í komandi kjarasamninga þeirra stéttarfélaga sem eru að semja fyrir stóra hópa þeirra lægst launuðu. Telur hv. þingmaður að kröfurnar verði í einhverju samræmi við það hvernig verið er að hella hækkunum inn í matarverð, sem bitnar svo þungt á þessum hópi sem alltaf þarf að berjast á öllum vígstöðvum, að hækka lágmarkslaun þeirra og auka kaupmátt? Og svo kannski líka staða þessa hóps varðandi lýðheilsusjónarmið, deilir hún áhyggjum með mér af heilsufari og lýðheilsu og aðstöðumun þeirra barna sem koma úr fjölskyldu sem hafa lágar tekjur, hvernig mataræði og samsetning þess er þegar matarskatturinn hækkar svona og lækkar á móti á sælgæti og ýmsum vörum sem eru ekki mjög hollar?