virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er athyglisvert að af öllum þessum greiningum hefur enginn hrakið greininguna frá Rannsóknarstofu verslunarinnar sem byggir á greiningum á gengisþróun, því að lækkanir skili sér síður í verð en hækkanir. Þegar horft er til þess að holl matvara muni fyrst og fremst þola hækkanir, óholl í heildina tekið mun búa við lækkanir, aðrir vöruflokkar í flestum tilvikum lækkanir, eins og flatskjáir, nuddpottar, ísskápar og því um líkt, þá blasir auðvitað við að það eina sem er öruggt er að hækkanirnar skila sér og þær eru í yfirgnæfandi mæli á hollri matvöru.
Þegar maður hefur þetta í huga, hvaða orð er þá hægt að velja fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar? Hv. þingmaður nefndi líka að hækkanir á komugjöldum yrðu um 20% á þessu ári. Í heildina stefnir í að á næsta ári muni ríkisstjórnin hafa hækkað kostnaðarhlutdeild almennings í heilbrigðisþjónustu um 1,9 milljarða, 1.900 milljónir, á tveimur árum. Hún hefur ekki gert mikið þessi ríkisstjórn en það sem hún hefur gert hefur hún þó vandað sig við, að lækka skatta og setja auknar álögur á venjulegt fólk eins og sjá má á þessari tölu. Þegar við sjáum síðan nýjar hugmyndir um náttúrupassa þar sem venjulegt fólk á að borga alveg óháð tekjum — það eiga allir að borga 1.500 kr. fyrir passann svo að hinir nýju náttúrulögreglumenn sem hæstv. iðnaðarráðherra ætlar að senda um allar koppagrundir hafi eitthvað fyrir stafni — þá spyr maður sig: Hvaða orð er (Forseti hringir.) hægt að velja skattstefnu þessarar ríkisstjórnar?