144. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[20:25]
Horfa

Róbert Marshall (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni hennar svar, það er mjög skýrt. Varðandi hollan mat hefur það því miður verið þannig í gegnum tíðina að fyrir foreldri sem vill forða börnum sínum frá því að kaupa til að mynda ávaxtasafa með miklu sykurinnihaldi hefur hollari safi kostað miklu meira en sá sem inniheldur mikinn sykur. Því miður eru hér uppi áform um að færa þetta í fyrra horf. Ég er sammála hv. þingmanni að sú viðleitni sem okkur birtist á síðasta kjörtímabili var mjög jákvæð.

Ég tek líka undir það sjónarmið að það eru auðvitað ekki tekjulægstu hóparnir sem eru í því að kaupa græjur, svo ég noti það orð almennt yfir það sem verður til lækkunar með lækkun vörugjalda. Það er auðvitað fólk sem hefur aðeins meira á milli handanna sem endurnýjar hraðar hjá sér heimilistæki. Ég held að í greinargerð með frumvarpinu sé talað um endurnýjunarveltu. Hún er meiri hjá þeim sem hafa meira milli handanna. Allir þurfa hins vegar að kaupa matvæli oftar en einu sinni og oftar en tvisvar í hverri viku. Þannig skil ég hv. þingmann að sú lækkun á vörugjöldum sem þarna kemur á móti sem mótvægisaðgerð dugar ekki til þess að koma til móts við þær auknu álögur sem tekjulægstu hóparnir verða hér fyrir.