144. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[20:29]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur fyrir ræðu hennar og mig langar að spyrja hana sem formann velferðarnefndar þingsins. Nú er það svo að umsagnir þeirra aðila sem tilheyra heilbrigðiskerfinu eða heilbrigðisgeiranum, því að þar eru líka frjáls félagasamtök sem senda umsagnir, snúast að mestu leyti um það sem hefur verið kallað sykurskattur og þar kemur margt áhugavert fram. Meðal annars kemur fram í umsögn frá SÍBS að Íslendingar borði 50 kíló af sykri árlega og yngstu kynslóðirnar borði tvöfaldað magn, eða 100 kíló af sykri árlega, og að þetta sé eitt stærsta lýðheilsuvandamál samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni sem við stöndum frammi fyrir.

Í umsögn landlæknis kemur fram að í grein í hinu virta fræðitímariti The Lancet hafi verið lagt mat á hvaða aðgerðir stjórnvalda í Ástralíu hafi skilað mestum ávinningi og árangri í því að bæta heilsu og draga úr útgjöldum vegna offitu, sem er af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni talið eitt stærsta heilbrigðisvandamál samtímans og framtíðarinnar. Niðurstaðan í þeirri grein í The Lancet, einu virtasta fræðitímariti heims á sviði læknavísinda og vísinda, er að áhrifaríkasta leiðin séu skattar á óhollustu. Því má eiginlega segja að allir þeir aðilar sem nálgast þetta mál úr heilbrigðisgeiranum séu sammála um að það sé eðlilegt, þó að eðlilegt sé líka að skoða framkvæmdina á þeim sykurskatti sem hefur verið við lýði, að skattleggja með einhverjum hætti óhollustuna og taka þannig upp einhvers konar neyslustýringu í gegnum skattkerfið.

Ég held að fyrir okkur Íslendinga, sem borða þetta mikið magn af sykri og ná óhugnanlega hátt á listum yfir offitu þjóða, hljóti það að vera mjög knýjandi spurning af hverju við tökum ekki þessar ábendingar alvarlega og af hverju ekki er haldið áfram með sykurskattinn og endurskoðum þá frekar framkvæmd hans. Mig (Forseti hringir.) langar að heyra hvað hv. formaður velferðarnefndar hefur um þessa hlið málsins að segja.