144. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[21:08]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ber hagsmuni sauðfjárbænda mjög fyrir brjósti og þekki marga bændur sem ekki eru vel settir fjárhagslega en vilja áfram yrkja landið og stunda sauðfjárbúskap. Oftar en ekki eru þessir bændur jafnvel á köldum svæðum með raforkukyndingu í húsum sínum og ekki lágvöruverslun í nágrenninu.

Þessar aðgerðir leggjast mjög þungt á þá. Ekki bara að samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu gagnvart innfluttum vörum versni þeim í óhag heldur hækkar matarverðið hjá þeim mikið og orkuverðið líka.

Ég er mjög undrandi á því, eins og kom fram hjá hv. þingmanni, að bændahjartað í Framsóknarflokknum virðist slá mjög hægt þessa dagana.