virðisaukaskattur o.fl.
Frú forseti. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Það ánægjulega sem gerðist í kjölfar hrunsins á Íslandi er að hér varð gríðarmikil sjálfsprottin gróska í hinum svokölluðu skapandi greinum. Út kom mikið af mjög frambærilegu tónlistarefni, listsköpun í landinu blómstraði sem aldrei fyrr, mikið af bókum skrifaðar eins og reyndar alltaf á Íslandi, en manni virðist að með þeim breytingum sem hér er verið að gera sé einmitt verið að reyna að hverfa frá þeirri jákvæðu þróun og í rauninni að hefta framþróun hennar og stöðva þá grósku sem verið hefur í þeim efnum.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann hver hann telur að verði áhrif þess til langframa.