144. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[21:20]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins til að leggja orð í belg í þessari umræðu um breytingar á virðisaukaskatti. Mér finnst þetta vera mjög stórt og mikilvægt mál. Um daginn var ég svo heppin að fá að sitja fund með stúlku sem er doktor í hagfræði og sérfræðingur í neytendahegðun. Hún talaði um hvað það væri mikilvægt þegar stjórnvöld væru að taka ákvarðanir, t.d. um breytingar á sköttum eða lengingu fæðingarorlofs eða hvað það væri, að byggja þær ákvarðanir á góðum gögnum.

Í löndunum í kringum okkur hafa hagstofur aðgang að miklu meiri upplýsingum en við og geta samkeyrt upplýsingar og tölfræði og metið miklu betur einstaka tekjuhópa og einstaka þjóðfélagshópa. Þetta eru upplýsingar sem stjórnvöld geta nýtt sér þegar þau taka ákvarðanir: Hvernig mun þessi ákvörðun hafa áhrif á þá sem lægstar hafa tekjurnar eða þá sem hæstar hafa tekjurnar eða karlmenn eða kvenmenn eða einstæða foreldra eða hvað það er?

Við á Íslandi höfum því miður ekki þessar upplýsingar í jafn miklum mæli og nágrannalöndin. Hagstofan tekur auðvitað saman gögn en hún hefur eins og margar stofnanir ekkert allt of mikið á milli handanna og hefur ekki bolmagn að ég held til að fara í ítarlegri úrvinnslu gagna og jafnvel ekki leyfi til þess. Það hefur svolítill styr staðið um það hér og Persónuvernd sett fingurna í sumt. En mér finnst þetta vera virkilega eitthvað sem við þurfum að skoða, hvort við þurfum ekki að færa okkur nær öðrum Norðurlöndum í þessu og vera ekki hrædd við að safna saman upplýsingum, geta keyrt þær þvert á hópa, þvers og kruss, og fundið út það sem við viljum. Að sjálfsögðu eru slíkar upplýsingar ekki persónurekjanlegar. Það er ekki þannig í hinum löndunum. Ef fólk vill fá úrtök verður að biðja um leyfi, skriflegt leyfi, og síðan er unnið úr gögnunum fyrir það. Á hagstofunni í Danmörku er deild sem er bara í því að vinna gögn fyrir fræðasamfélagið og sem stjórnvöld nýta síðan þegar þau taka ákvarðanir.

Ef fram fer sem horfir og við náum ekki að sannfæra vini okkar í meiri hlutanum um að skipta um skoðun munum við væntanlega hækka virðisaukaskatt á matvæli, bækur, plötur og menningu og lækka efra þrepið, sem er jákvætt, úr 25,5% í 24, og afnema vörugjöld og það er auðvitað líka jákvætt skref. En við höfum örugglega mjög mörg áhyggjur af matnum og menningunni. Fyrirtækið Meniga var að skoða gagnagrunn sinn og mér fannst áhugavert að það kom í ljós að einstaklingar sem hafa almennt minna á milli handanna eyða hlutfallslega meiru af ráðstöfunartekjum sínum í matvæli. Þetta kemur svo sem ekki á óvart en því er samt oft haldið fram að í matvæli fari bara ákveðin prósenta og það skipti ekki öllu máli hvað fólk hafi í tekjur. Það er hins vegar ekki alveg rétt. Við getum líka velt því fyrir okkur hvort þeir sem hafa minna á milli handanna séu ekki líka að kaupa ódýrari mat, þ.e. lélegri mat. Það að hækka virðisaukaskatt á matvæli finnst mér því mjög stórt mál og eitthvað sem menn eiga ekki að fara út í nema skoða það virkilega vel og mér finnst það ekki hafa verið gert.

Þá vakna líka spurningar. Nú sit ég ekki í efnahags- og viðskiptanefnd og veit ekki nákvæmlega hvað hefur gerst þar á fundum en ég heyri þó frá mínu fólki að það liggja ekki fyrir nein stórkostleg gögn um það hvernig breytingarnar komi við ólíka tekjuhópa. Vitum við t.d. hvað neytendur gera ef bækur hækka? Hversu stór hópur fólks hættir við að kaupa bók ef hún kostar aðeins meira en hún gerði áður? Hvað mega bækur hækka mikið til að neytendur segi: Nei, þetta er of mikið? Og hvernig er sá munur eftir þjóðfélagshópum?

Ég velti fyrir mér: Er gert ráð fyrir því í tekjuáætlun stjórnvalda að neyslan verði bara nákvæmlega eins eða er gert ráð fyrir að eitthvað dragi úr neyslunni þegar menn reikna hvað ríkissjóður muni fá fyrir að hækka neðra þrep virðisaukaskatts í 11% og hvað lækkun á efra þrepi um 1,5 prósentustig muni kosta ríkissjóð? Gera menn ráð fyrir því að sú lækkun muni skila sér öll út í verðlagið? Ég spyr þessara spurninga og væri óskandi að einhverjir úr meiri hlutanum sem vita þetta mundu svara þessu. Er gert ráð fyrir óbreyttri neyslu í tekjuáætlun ríkisstjórnarinnar? Spurningin sem ég er að spyrja er: Munu neytendur hugsanlega draga saman seglin, munu þeir eyða minna? Liggja svörin yfir höfuð fyrir?

Mér finnst líka athyglisvert að skoða umræðuna sem varð hér þegar við ætluðum að hækka virðisaukaskatt á gistingu úr 7% í 11, en meiri hlutinn ákvað að hætta við það í fyrravor. Þá voru haldnar mjög innblásnar ræður og því haldið fram að það að hækka ekki virðisaukaskatt á gistingu, þ.e. að halda honum í 7%, mundi auka tekjur til lengri tíma. Í ræðum fulltrúa meiri hlutans kom m.a. fram að á móti því tekjutapi sem ríkið yrði fyrir kæmi aukin eftirspurn og viðbótartekjur til lengri tíma. Því var haldið fram í ræðu af hæstv. fjármálaráðherra, sem sagði, með leyfi forseta:

„Við teljum að með því að halda þessu virðisaukaskattsþrepi lágu, að minnsta kosti næstu árin, séu meiri líkur til þess að það losni um fjárfestingartækifæri og fjármagn streymi inn í greinina frekar en ef virðisaukaskatturinn yrði hækkaður, það er svo einfalt.“

Þetta var sagt fyrir einu og hálfu ári. Þá voru þetta rökin. Þetta snerist líka um að senda út jákvæð skilaboð til atvinnulífsins. Svo segir einnig í einni ræðunni, með leyfi forseta:

„Kannski er það svo að ferðaþjónustan skilar einmitt hlutfallslega meiru á Íslandi þrátt fyrir lægri skattprósentu eða skattbyrði, eins og hv. þingmaður kom inn á, en annars staðar vegna þess að við ætlum okkur ekki of stóran hluta af tekjum ferðaþjónustunnar. Kannski er samhengi á milli þess að ferðaþjónustan skilar hlutfallslega meiru hér en í samanburðarlöndunum, sem hv. þingmaður vék að, og þess að sköttunum er stillt í hóf.“

Sem sagt, af því að skattarnir væru lágir fengjum við meiri tekjur. Síðasta tilvitnunin, með leyfi forseta:

„Ef virðisaukaskatturinn er hækkaður hækkar reikningurinn til þeirra sem koma til Íslands. Þess vegna er þetta hluti af samkeppnisumhverfi þeirra sem veita þjónustuna. Við erum í samkeppni við marga aðra valkosti þegar kemur að því að ferðast um heiminn. Viljum við í raun og veru fjölga ferðamönnum sem koma til Íslands þurfum við að gæta að samkeppnisumhverfinu.“

Þó að það geti verið snúið að vitna í gamlar ræður og vera kannski að einhverju leyti að slíta orð úr samhengi finnst mér þetta samt mjög mikilvægt, vegna þess að þá get ég spurt í dag: Á það sama ekki við um bækur og menningu? Með því að hækka ekki virðisaukaskattinn verður þá ekki meiri eftirspurn, meiri sala og jafnvel meiri tekjur? Auðvitað lágu engin gögn til grundvallar þeim ræðum sem haldnar voru vorið 2013. Þetta voru í rauninni bara getgátur vegna þess að við höfðum engar rannsóknir, það er líka það sem ég er að gagnrýna. Mér finnst við alltaf vera að taka einhverjar ákvarðanir án þess að hafa næg gögn. Við vísum meira í einhverja tilfinningu, og það er vont þegar við förum að rökstyðja mál út frá tilfinningu. Maður gerir þetta sjálfur, ég veit það, maður fer oft að rökstyðja eitthvað út frá tilfinningu. Þess vegna mundi ég vilja sjá miklu meiri gögn áður en við tökum ákvörðun um að hækka virðisaukaskatt á mat og menningu.

Ég get vissulega verið sátt við að við lækkum efra þrepið. Það var, eins og hefur komið fram í ræðum, orðið eitt það hæsta í heimi en það var ástæða fyrir því. Það er gott að það lækki. Ég er ekki endilega sannfærð um að lækkunin skili sér öll til neytenda og það er ekki af því að seljendur séu svo vondir. Það er einfaldlega þannig að það er mismunandi eftir vörum hversu mikil samkeppnin er og margar vörur eru þannig, líka þær vörur sem á að afnema vörugjöld á, að fólk kaupir þær sjaldan og hefur ekki mikla tilfinningu fyrir því hvað þær kosta. Það er því ekki endilega eitthvað óeðlilegt við það að lækkunin skili sér ekki að fullu leyti. Þá get ég líka spurt: Er gert ráð fyrir því í tekjuáætluninni að 1,5 prósentustigslækkunin skili sér 100%? Það veit ég ekki.

Svo finnst mér mikilvægt að við höfum í huga varðandi matarskattinn að mótvægisaðgerðirnar, sem er milljarður í barnabætur, koma bara til barnafólks, en það eru allir sem þurfa að kaupa mat. Það geta verið ellilífeyrisþegar, nemar, öryrkjar, einstæðir foreldrar sem eru ekki með barn á framfæri. Mér finnst svolítið skrýtið að lækka skatt en bæta í millifærslukerfið. Það þarf að endurskoða það og líka hvaða áhrif þessi hækkun hefur fyrir tekjulægstu hópana í samfélaginu. Mér finnst við ekki geta farið í þessa aðgerð nema við tryggjum að við bætum þeim hópum upp þessa hækkun.