virðisaukaskattur o.fl.
Frú forseti. Ég þakka fyrir svörin. Vandamálið með að ná samstöðu á þingi er til komið vegna þess að frumvörpin koma utan frá. Ég hef margoft lagt til að nefndir þingsins semji frumvörp, annaðhvort meiri hlutinn eða öll nefndin. Þá væru allir nefndarmenn inni í málinu og mundu til dæmis skilja af hverju ég vil fá 12% virðisaukaskatt á mat en ekki 11%. Af hverju vil ég það? Af því að þá minnkar bilið og þá minnka möguleikarnir á að hagræða og svindla.
Það er því ákveðin hugsun í því frumvarpi sem við ræðum hér og hún er ekki alveg út í bláinn. Alls ekki. Fyrir utan að það er alveg stórkostlegt að fá vörugjöldin í burtu. Ég hef látið mig dreyma um það í 20 til 30 ár. Nú allt í einu rætist draumur minn, þannig að mér finnst þetta vera virkilega gott frumvarp. Í heildina lækkar það útgjöld heimilanna.