virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Í raun og veru er ótrúlegt hvað af mörgu er að taka þegar kemur að því að gagnrýna slælegan undirbúning málsins og margar mótsagnir í því. Ég staðnæmist fyrst við það sem hv. þingmaður nefndi með virðisaukaskattinn sem tekjujöfnunartæki. Því hefur verið haldið fram, eins og þingmaðurinn vísaði til, að það væri ekki gott tæki til þess, vegna þess að efnafólk og efnaminna fólk eyddi sama hlutfalli af tekjum sínum í mat. Ég hef, kannski eins og þingmaðurinn sjálfur, ekki fengið þetta til að ganga heim og saman hvernig svo sem ég hef hlustað á umræðuna. Mér taldist til undir ræðu þingmannsins að lífeyrisþegi með kannski 170 þús. kr. í tekjur á mánuði ætti þá að vera að borða fyrir 25 þús. kr. á mánuði eða um 800 kr. á dag.
Hefur hv. þingmaður heyrt einhvern leggja fram útreikninga í gögnum málsins eða umræðunni hér sem styðja þær fullyrðingar um að láglaunafólk eyði jafn miklum hluta launa sinna í mat eins og hálaunafólk? Er þetta ekki augljóslega rangt og þar með í raun og veru málið allt á sandi byggt? Er þetta ekki einhvers konar útreikningur eins og var um það við framlagningu málsins að hver máltíð kostaði bara 200 og eitthvað krónur, og augljóslega komið frá einhverju fólki sem fer ekki oft út í matvöruverslun og þarf ekki oft að standa við kassann og reiða fram fjármunina?