144. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[22:21]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það má svo sem færa rök að því að þrepaskipt tekjuskattskerfi og bótakerfi sé betra og hnitmiðaðra tekjujöfnunarkerfi en virðisaukaskattskerfi. Fræðilega er það auðvitað rétt.

Hins vegar er ég alveg sammála þingmanninum að það er náttúrlega ekki hægt að bjóða upp á, eða mér finnst ekki hægt að bjóða upp á það sem hefur verið gert í framlagningu þessa máls að tala alltaf í meðaltölum, vegna þess að fólk er ekki meðaltal. Fólk er fólk og fólk hefur misjafnlega háar tekjur og það er staðreynd sem enginn getur neitað hér að matur á Íslandi er mjög dýr. Þeir sem hafa lægri tekjurnar fara með mest af tekjum sínum í mat og þess vegna bitnar það auðsjáanlega mest á þeim ef maturinn hækkar í verði. Ég held meira að segja að hæstv. forsætisráðherra hafi sagt þetta fyrir tveim eða þrem árum einhvers staðar, að ljóst væri að matarskattur bitnaði auðvitað, og hækkun hans, mest á þeim sem minna hafa. Og það er bara enginn vafi á því.