virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Willum Þór Þórssyni fyrir ræðu hans. Það er nokkuð ljóst að við lítum þetta talsvert ólíkum augum og þess vegna gott að geta átt orðastað við hv. þingmann hér.
Það sem ég tók eftir og langar að spyrja nánar út í var það að mér fannst hann skauta svolítið fram hjá umræðunni um sykurskattinn. Afnám á vörugjöldum á sykruð matvæli mun leiða til þess að þau verða ódýrari en á sama tíma á að hækka virðisaukaskattinn á holla matnum.
Þar sem ég veit að hv. þingmaður er mikill áhugamaður um lýðheilsumál langar mig að heyra hans sýn á hvaða áhrif þetta komi til með að hafa, þetta samspil (Forseti hringir.) að þessar tvær breytingar séu gerðar á sama tíma.