144. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[22:53]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur fyrir mjög góða spurningu. Ég skal alveg viðurkenna að hún setur mig í eilitla klemmu með henni og ekki bara fyrir það að þetta er snúinn skattur og hafi ekki skilað tilætluðum árangri, hafi því miður ekki orðið til þess að draga úr sykurneyslu.

Gögn benda til þess að það þurfi að hækka þennan skatt verulega til að hann skili árangri. Hér er verið að afnema vörugjöld og sykur er nánast í öllum matvælum þannig að við viljum tryggja að verð til neytenda lækki. Þar er klemman af því að ég mun alltaf tala fyrir bættri lýðheilsu og hollari fæðu.