144. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[23:47]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum aftur andsvarið. Ég held að það sé alveg ljóst að þetta mál var ekki unnið á miklum hraða. Ég held að þeir hafi haft svo mikinn tíma að þeir hefðu átt að geta gert þetta miklu betur en þau gerðu, ríkisstjórnin og meiri hlutinn. Ég skil eiginlega ekki niðurstöðuna miðað við þann tíma sem þetta er búið að taka, miðað við þær umsagnir sem liggja fyrir, og þetta tók allan þennan tíma, finnst mér þetta ekki hafa skilað því sem við áttum von á þótt augljóslega hafi verið tekið tillit til einhvers. En það er ekki spurning að hægt er að taka mið af fleiru en bara Hagstofunni og auðvitað eiga menn að reyna að stilla upp sem flestum sviðsmyndum og nota sem flest gögn til að gera það. Hagstofan fékk gríðarlegar heimildir á síðasta þingi og að sjálfsögðu á að vera hægt að nota það, en eins og ég segi er hægt að nota fleiri gögn.