144. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2014.

rannsókn kjörbréfs.

[15:04]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Katrín Júlíusdóttir, hv. 11. þm. Suðvest., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir því að í dag taki Lúðvík Geirsson sæti á Alþingi en hann er 3. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu. 1. og 2. varamaður á lista í kjördæminu hafa boðað forföll.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Lúðvík Geirssyni. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.