144. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2014.

störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F):

Hæstv. forseti. Í gær fékk ég svar við fyrirspurn sem ég sendi hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir nokkru síðan. Í fyrirspurninni var hæstv. ráðherra spurður hversu há vaxtagjöld ríkisins hefðu verið vegna lána til bjargar fjármálakerfinu frá hruni til dagsins í dag. Fyrirspurninni var vel svarað og mjög skýrt: Svarið nær til þeirra vaxta sem ríkissjóður hefur greitt til dagsins í dag vegna endurfjármögnunar fjármálastofnana, bæði viðskiptabanka og sparisjóða, í kjölfar hruns fjármálakerfisins í október 2008. Jafnframt nær svarið til vaxtagjalda vegna fjármögnunar ríkissjóðs á eigin fé Seðlabanka Íslands vegna tapa á veðkröfum sem bankinn varð fyrir við fall fjármálakerfisins.

Ástæða þess að ég lagði fram þessa fyrirspurn er sú að forvitnin greip mig. Mig langaði að fá að vita hverjar þessar tölur væru vegna þeirrar umræðu sem átti sér stað í kringum skuldaaðgerðir ríkisstjórnarinnar þar sem nokkrir þingmenn töluðu um arfavitlausa útdeilingu fjármuna.

Þeir 80 milljarðar sem notaðir eru í beinu niðurfellinguna, þ.e. leiðréttinguna, eru fengnir í gegnum skattlagningu á gömlu þrotabúin sem áttu þátt í að hér fóru hlutirnir eins og þeir fóru á haustmánuðum 2008. Í svari hæstv. fjármálaráðherra kemur fram að alls hafa 153 milljarðar kr. farið í vaxtagreiðslur og verðbætur ríkissjóðs vegna lána sem tekin voru til endurreisnar á fjármálakerfinu. Þetta eru fjármunir sem koma beint úr ríkissjóði, beint frá skattgreiðendum þessa lands.

Ef við rýnum aðeins ofan í tölurnar hafa 15 milljarðar farið til Arion banka í vaxtagreiðslur, 11 milljarðar til Íslandsbanka, 44,2 milljarðar til Landsbankans og 2,6 milljarðar til Landsbankans vegna Sparisjóðs Keflavíkur. Áfallnir vextir og verðbætur vegna skuldabréfa Seðlabanka Íslands eru um 80 milljarðar.

Þrátt fyrir þessar staðreyndir heyrist ekki mikið í þeim aðilum er gagnrýndu þá fjármuni sem fara í gegnum skattlagningu á gömlu þrotabúin til heimilanna. Einnig heyrist lítið í forustumönnum frá aðilum vinnumarkaðarins. Það hlýtur bara að vera (Forseti hringir.) að fjármunir til fjármálakerfisins séu rétt forgangsröðun að þeirra mati.