störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í dag er 3. desember sem er alþjóðadagur fatlaðs fólks. Dagur þessi hefur verið haldinn hátíðlegur af Sameinuðu þjóðunum frá árinu 1992 til að vekja athygli á aðstæðum og baráttumálum fatlaðs fólks. Við gerumst stundum hátíðleg á svona sérstökum dögum en mig langar hins vegar í dag að vera á praktísku nótunum og tengja daginn við umræðu dagsins í þinginu, þ.e. fjárlögin. Þá vil ég bæði hafa undir útgjaldahlið ríkisins og tekjuöflun. Rannsóknir sýna að fatlað fólk og öryrkjar eru mun líklegri en margir aðrir þjóðfélagshópar til að búa við fátækt eða á mörkum fátæktar. Íslensk rannsókn sýnir að sá hópur öryrkja sem er hvað verst staddur fjárhagslega er fjölskyldur með börn og þá sérstaklega einstæðar mæður. Ég vil því spyrja ykkur, hv. þingmenn: Hvernig ætlið þið, og þá við í sameiningu, að taka á þessu? Ætlum við að gera það með því að hækka matarskatt þó að við vitum að slík aðgerð leggist með mestum þunga á tekjulága? Ætlum við að gera það með því að auka kostnaðarhlutdeild sjúklinga í nauðsynlegum lyfjum þó að við vitum að sumir í hópi öryrkja hafi nú þegar ekki efni á því að leysa lyfin sín út? Ætlum við að gera það með því að falla frá þeirri fyrirhuguðu hækkun bóta almannatryggingakerfisins sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu eins og það stendur núna, fara að tillögum meiri hluta fjárlaganefndar og lækka hækkunina niður í 3% (Forseti hringir.) og halda þar með áfram að láta öryrkja rétt svo skrimta? Hvernig ætlum við að gera þetta í dag, á alþjóðadegi fatlaðra sem og alla aðra daga?
Virðulegi forseti. Fátækt á meðal fatlaðs fólks og öryrkja er staðreynd.