störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nýlega barst svar hæstv. dómsmálaráðherra við fyrirspurn minni um ástæður hlerana frá árinu 2008. Ég þyrfti meira en þessar tvær mínútur sem ég hef hér til að fjalla um allt sem er áhugavert í því svari en ég verð að segja að sumar tölurnar eru sláandi. Frá ársbyrjun 2009, þ.e. frá þeim tíma sem lög um meðferð sakamála tóku gildi, hafa verið 720 beiðnir um hleranir á síma samkvæmt töflu 1 í svarinu.
Hversu mörgum hafnað? er spurt. Fimm. Það eru 0,69%. Með öðrum orðum er samþykktarhlutfall hleranabeiðna 99,31% samkvæmt þessu.
Í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í málinu Iordachi o.fl. gegn Moldavíu frá 10. febrúar 2009 var fjallað um framkvæmd á símhlustun og sambærilegum úrræðum lögreglu. Í ljósi þess að dómstólar í Moldavíu samþykktu í raun allar beiðnir lögreglu um beitingu fjarskiptarannsókna ályktaði dómurinn að viðkomandi lög í Moldavíu hefðu ekki tryggt næga vernd gegn misnotkun valds sem mælt er fyrir um í 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs.
Í 13. mgr. dómsins kemur fram að árið 2005 hafi 98,81% beiðna um símhleranir verið samþykktar af dómstólum í Moldavíu. Árið 2006 voru það 97,93% og árið 2007 99,24%. Ég minni á að hlutfallið hérlendis var 99,31% sem er hærra en öll þessi hlutföll.
Símhlustun er mjög alvarlegt inngrip í réttindi fólks og eingöngu ber að heimila hana á grundvelli rökstudds gruns um alvarlegan glæp. Því á ekki að fara með þessi mál af léttúð.
Virðulegi forseti. Hér er greinilega eitthvað að. Ég legg til að Alþingi taki vernd gegn misnotkun valds alvarlega og beiti sér fyrir því að þær breytingar verði gerðar sem nauðsynlegar eru til að tryggja fólkinu í landinu eðlilega vernd gegn yfirvöldum.
Að lokum legg ég til að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.