fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Nú er ég ekki jafn tæknivædd og hv. þingmaður þannig að það mundi kannski ekkert endilega hjálpa mér mikið að þetta færi allt á eitt svæði. Gagnagáttin er svo sem ágæt og nýtist okkur að mörgu leyti vel, en hún gæti verið betri, ég get tekið undir það. Það tekur mjög langan tíma að finna skjöl í fjárlaganefndinni, t.d. skjöl sem snúa að frumvarpinu, það eru fjölmargar síður. Það er kannski skipulagningin sem ég mundi vilja bæta og það á við um allar nefndir. Fundarboð væru svolítið langt fram í tímann þannig að maður sæi t.d. tvær, þrjár vikur fram í tímann hvernig fundum er raðað upp. Það er líka mjög mikilvægt að fá gögn í hendur fyrir fundi, ekki á fundinum sjálfum, hvort sem þau eru rafræn eða útprentuð eða hvernig sem það er. Við höfum kvartað yfir því og kallað eftir því að við fáum send gögn kvöldið áður þannig að við getum verið búin að lesa þau og getum þá spurt einhverra spurninga af viti á fundinum.
Annað með fjárlaganefnd er að það liggur við að maður þyrfti meiri tíma til að sinna því starfi betur. Það að sitja í fjárlaganefnd gefur eiginlega varla tíma fyrir annað nefndastarf eða mikil þingfundastörf. Þetta er gríðarlega víðfemt og maður hefur á tilfinningunni að maður sé bara rétt að krafsa í yfirborðið. Ég mundi vilja nokkra klukkutíma í viðbót í sólarhringinn til þess að geta sinnt því betur.
Ég skal ekki segja. Vandamálið er að á haustin er mikill hraði og mikil læti. Þetta gekk ágætlega núna vegna þess að fjáraukinn kom ekki beint inn í vinnuna en þetta var skelfilegt í fyrra. Þá var eins og engar dagsetningar stæðust og þetta endaði allt í einni kös. Mér finnst líka vont, eins og ég kom inn á í ræðu minni, þegar frumvarpið kemur svo vanbúið fram. Bunkinn sem við erum með af breytingartillögum finnst mér eiginlega vera ígildi nýs frumvarps. Mér finnst svolítið einkennilegt að menn skuli ekki vera búnir að móta stefnuna betur og koma með meira tilbúið frumvarp, það mundi auðvelda okkur vinnuna vegna þess að við bíðum fram á síðustu (Forseti hringir.) stundu eftir breytingartillögum áður en við getum yfir höfuð byrjað að huga að okkar nefndaráliti.