144. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[22:29]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég veit ekki hvað við eigum að ganga langt í prósentutölu, en ég vil ganga það langt að við komumst hjá því að lenda í þeim neikvæða spíral að missa mannauðinn, að við missum læknana. Þá lendir vaktaálagið á öðrum læknum sem eru líklegri til að fara. Ég veit ekki hver sú tala er, en það er örugglega hægt að komast að því. Hún er klárlega hærri en 3%. Ég vil spyrja hv. þingmanninn á móti: Finnst honum ekki að við eigum í þessu árferði, standandi frammi fyrir þessu, að veita heilbrigðisstarfsmönnum sérmeðferð — sérmeðferð — forgangsraða fjármunum skattgreiðenda þangað?