fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir spurninguna. Þetta er mjög góð spurning. Ég hefði persónulega talið að við þyrftum að byrja á því á þessu ári, það er um slíkar fjárhæðir að ræða. En það verður ekki. Ég tel að það sé algerlega nauðsynlegt að við förum að vinna á þessum stabba á næstu tveimur til þremur árum. Það verður að fara að gerast. Ef við aukum tekjur okkar eins og við gerum nú, getum við ekki endalaust sett þá tekjuaukningu inn í kerfið hjá okkur sjálfum í aukin útgjöld. Við verðum að nota hana til að borga niður skuldir og vexti, við verðum að ná því niður. Þetta er bara eins og hvert annað heimilisbókhald; ef maður tekur ekki á lánamálunum endar það með ósköpum.