144. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[23:22]
Horfa

Karl Garðarsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Almennt er ég þeirrar skoðunar að þingnefndir séu ekki nógu sjálfstæðar gagnvart framkvæmdarvaldinu, það hefur verið skoðun mín mjög lengi. Ég var þeirrar skoðunar áður en ég kom sjálfur á þing og sú skoðun mín hefur eflst eftir að ég kom hingað. Mér finnst að við þurfum að sýna meiri sjálfstæði hér sem þingmenn, við eigum að gera það, okkur ber að gera það. Mér finnst oft og tíðum að framkvæmdarvaldið hafi of mikil áhrif á gerðir okkar og ákvarðanir. Það er ekki viðunandi og það er einmitt það sem ég benti á í ræðu minni.