144. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[23:24]
Horfa

Karl Garðarsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er alveg hárrétt hjá hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur að útvarpsgjald er ekki mjög hátt hérlendis miðað við það sem þekkist víða annars staðar. Sjálfur er ég fylgjandi því að lækka skatta eins og hægt er á almenning þannig að ég út af fyrir sig hef ekki verið á móti því að lækka útvarpsgjaldið.

Ég held að það nauðsynlega í þessu máli sé að við verðum að skilgreina hlutverk Ríkisútvarpsins betur. Menn segja: Það er skilgreint. Það er ekki skilgreint nógu vel. Ríkisútvarpið getur sinnt hlutverki sínu í raun með mun minni fjármunum en það hefur í dag ef litið er kalt á málið hvað felst í þessum ramma. Það er mjög teygjanlegt í hvaða áttir við förum með það hvaða skyldur Ríkisútvarpið hefur og hvaða fjármuni það hefur. Um það snýst þessi barátta. Hvað þarf stofnunin mikið til að sinna sínu hlutverki og hvað á hlutverkið að vera stórt?