fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég skil hv. þingmann þannig að hann sé þá ekki að horfa til þess að lögin séu ekki skýr heldur snúist þetta um túlkun á lögunum.
En þá langar mig að spyrja hv. þingmann að öðru, það er sú staðreynd að lífeyrisskuldbindingar eru um það bil 65% af skuldum Ríkisútvarpsins. Lífeyrisskuldbindingar hafa ekki verið settar á öll þau opinberu hlutafélög sem við eigum. Málum er ekki þannig háttað til að mynda hjá öllum nágrannaþjóðum okkar sem hafa gert ríkisútvörp sín ýmist að opinberum hlutafélögum eða sjálfseignarstofnunum. Telur hv. þingmaður í ljósi erfiðrar stöðu Ríkisútvarpsins réttmætt að lífeyrisskuldbindingarnar verði skoðaðar sérstaklega hvað varðar Ríkisútvarpið til að útvarpið geti fyrst og fremst farið að einbeita sér að rekstri og síður að skuldum, því að hv. þingmaður nefndi lífeyrismálin í ræðu sinni, og vorum við að gera Ríkisútvarpinu óleik með því að hafa fært í raun og veru lífeyrisskuldbindingarnar þangað sem gert var í upphafi þegar stofnuninni var breytt í hlutafélag?