fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það er alveg rétt að stytting á atvinnuleysistímabili kemur mjög mörgum illa. Við skulum hins vegar gæta að því að atvinnulausum hefur sem betur fer farið mjög fækkandi á undanförnum árum, þetta er því mun minni hópur en áður. Það þarf að koma með úrræði fyrir þann hóp. Efla þarf atvinnuúrræði og úrræði til starfsendurhæfingar og annað slíkt og það er það sem er að vissu leyti verið að gera í fjárlagafrumvarpinu, en það þarf samt að huga að þessum hópi sérstaklega. Það þarf vissulega líka, og það er rétt hjá hv. þingmanni, að hafa meira samráð við verkalýðshreyfinguna og sveitarfélög um það mál. Ég er algerlega sammála þingmanninum um það.